![]() ![]()
![]()
|
|
Lykilorðið á síðuna er þorpið sem við bjuggum í áður en við fluttum síðast :)
Ég er fædd á sjúkrahúsinu á Akranesi, ég fæddist á sunnudeginum 1 febrúar 2004 kl 11:06 ég var 3145 gr eða 12 1/2 mörk & 50 cm.Þegar ég fæddist var ég með alveg dökkt hár og svarbrún augu ég er alveg rosalega sæt stelpa. Fæðinginn gekk alveg rosalega vel mamma fékk fyrstu verkina kl 03:00 um nóttina og var kominn uppá sjúkrahús kl 08:30 um morgunin og var þá kominn með 6-7 í útvíkkun hún var þá sett á fæðingarstofunna og eftir smá remibing var ég kominn engar deyfingar heldur alveg af nátturinnar hendi. Ljósmóðirinn sem tók á móti mér hét Anna Lísa hún var alveg yndisleg.Mamma mín heitir Harpa Gunnarsdóttir og pabbi minn Jón Örn Ómarsson þau eru alveg rosalega stolt af mér.
Margrét Nafn þetta er fengið af gríska nafninu "Margarites" sem var leitt af nafnorðinu "margaron" sem merkir perla. Einnig má segja að nafn þetta sé sett saman úr nafnorðinu "mar" sem merkir sær og viðliðnum "grét" í merkingunni tár. Margrét merkir því tár hafsins, - perla. Lilja Jurtaheitið lilja.
MAMMA ER KONAN Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Takk fyrir að vera mamma mín.
ELSKU MAMMA OG PABBI... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
PABBI ER MAÐURINN Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt. Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Takk fyrir að vera pabbi minn.
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
Aþena ósk og Hildur Ýr
Eva Margret
Viktoría Maren og Cecelia Marín
Breki örn
Almar Páll
Valur Snær
Breki Freyr
Ásta María
Andrés Emil
Bumbukríli Arnars og Guggu
Borgarnesbörn
Guðjón og Margrét
Heiðrún Hulda
Hugi Hrafn
|
|
|
|
|
| Þú ert gestur nr. 20014 |